Vefposi HSSR fyrir sölu Neyðarkallsins er aðgengilegur á posi.hssr.is.
Þar skráir kaupandi fyrst inn nafn sitt, söluaðila og síðan hversu marga Neyðarkalla hann vill kaupa. Að því loknu er gengið frá greiðslu á öruggri greiðslusíðu hjá Straumi.
Ef söluaðilinn er skráður í D4H fær hann tölvupóst þegar greiðsla hefur borist. Í tölvupóstinum koma fram upplýsingar um kaupandann og hversu margir Neyðarkallar voru keyptir svo hægt sé að ganga frá afhendingu.
Einnig er hægt að styrkja sveitina án þess að kaupa Neyðarkall. Þá er „Frjálst framlag“ valið í stað „Neyðarkall“. Reiturinn fyrir fjölda Neyðarkalla hverfur þá og í staðinn birtist reitur þar sem hægt er að slá inn upphæð framlagsins.
Félagar sem eru skráðir í D4H geta búið til sinn eigin hlekk á posi.hssr.is/hlekkur.
Þegar kaupandi opnar slíkan hlekk er söluaðilinn þegar skráður. Kaupandinn þarf þá aðeins að skrá inn nafn sitt, velja fjölda Neyðarkalla og ganga frá greiðslu.
ATH: Facebook leyfir okkur ekki að setja tillögutextann sjálfkrafa inn í færsluna. Afritaðu því textann áður en þú ýtir á „Deila á Facebook“.
Ef nafnið þitt kemur ekki fram í leitinni skaltu hafa samband við starfsmann sveitarinnar sem getur kannað skráninguna þína í D4H. Upplýsingar í leitinni eru uppfærðar daglega.
Sýnidæmi af síðunum má sjá hér að neðan: